Það er ótrúlega fyndið hversu öflug við verðum í maí-júní að blogga og skipuleggja ... svo um leið og 16.júní er liðinn þá bara leggjumst við í dvala ! Allavega blogg-dvala ... við erum þó öll sprelllifandi ekki satt ....
Maður hefur frétt ýmisslegt af sumum og ekkert af öðrum ... T.d. var hann Sævar á Ítalíu að mér skylst og drakk frá sér allt vit

það sama gerði Linda sem lagði land undir fót og fór í "drykkju-skóla" alla leið til Prag, hefði nú haldið að hún þyrfti nú ekki að fara til útlanda til þess. Þríeykið Jóhanna Ólöf og Þórdís eru í óða önn við að plana skíðaferð um miðjan júlí ! Já já segjum svo að þær séu ekki skipulagðar þær stöllur ... ( ég er alveg að fara að panta

) ... við hin sem komumst ekki úr landi látum okkur nægja gleðskap á t.d. þriðjudagskvöldum (þar sem Inga þurfti nú ekki mikið í aðra tánna til þess að verða sótölvuð) hohoho! ... Jan ætlar að bregða sér til Noregs á morgun og hann fær sér nú örugglega nokkra kalda! Ætli Heiða sé ekki bara enn í góðu glensi með President dósunum sínum sem hún eignaðist 16.júní helgina góðu ! Guðný spókar sig bara um í danaveldi og æfir stíft armauppliftingar fyrir kýpur

... Hef nú lítið heyrt af Guðna, ætli hann sé ekki bara í þoku í orðsins fyllstu merkingu .. heheh!
Man óskaplega lítið meira í bili .... en aðal erindi mitt hingað inn var til þess að tilkynna fyrirhugaða
útilegu! Og þeir sem ætla að mæta eru
Linda og
Andrea djamm-partnerarnir ! Stefnan er tekin á helgina fyrir Verslunarmannahelgi ..
25 - 27 júlí 2009 ! Allir skemmtilegir eru
velkomnir með oss og endilega komið með
hugmynd af áfangastaðHingað og alls ekki lengra ...
FLÖSKUdagskveðjur
Andrea hin eina sanna .....
og já ég skellti inn helling af myndum bæði inn á myspace og facebook frá því norðurferðin var farin og ef þið eruð ekki svo tæknivædd að vera hvorki með face og mys... þá bara grey þið !

